Spurningar og svör
Hvert er hlutverk frístundaheimila ÍTR?
Frístundaheimilin bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur. Leiðarljós frístundaheimilanna er að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.
Hve lengi er opið í frístundaheimilum á daginn?
Frístundaheimilin eru opin til 17.15 á daginn.
Er opið í skólaleyfum, t.d. um páska, jól og vetrarfríum?
Það er boðið upp á vistun í páska- og jólaleyfum frá 8:00 til 17:15, en lokað í vetrarfríi skóla og á rauðum dögum. Greitt er aukalega 890 kr. fyrir viðveru fyrir hádegi þessa daga.
Er opið á starfsdögum skóla?
Já, það er opið frá 8:00 til 17.15 á frístundaheimilum á starfsdögum skólans.
Hver ber ábyrgð á rekstri frístundaheimilana?
Frá og með haustinu 2004 rekur ÍTR öll frístundaheimili í Reykjavík. Þannig ber Tónabær ábyrgð á rekstri frístundaheimilanna í Austurbænum.
Hvar eru frístundaheimilin staðsett?
Frístundaheimilin eru staðsett í húsnæði skólanna og hafa eina heimstöð, svokallað hjarta frístundaheimilisins. Jafnframt er leitast við að hafa samráð við skóla um samnýtingu á húsnæði sem ekki er í notkun hverju sinni, s.s. sérgreinastofur, íþróttasalur og hátíðarsalur.
Kemst barnið mitt örugglega að strax í haust?
Tekið verður á móti jafnmörgum börnum og starfsmannafjöldi og húsnæði á hverjum stað leyfa.
Hvernig segi ég upp plássinu?
Segja þarf upp plássinu á rafrænni Reykjavík viðkomandi frístundaheimilis og þarf það að gerast fyrir 15. hvers mánaðar.
Get ég treyst því að barnið mitt sé í öruggum höndum á frístundaheimilinu?
Allir starfsmenn frístundaheimila hafa farið á námskeið um öryggi, slys og forvarnir og eru eldri en tvítugir. Á frístundaheimilum gilda öryggisreglur sem starfsmönnum ber að fylgja, til að mynda eru aldrei fleiri en 8 börn á starfsmann í vettvangsferðum.
Getur barnið mitt farið í íþróttaskóla?
Íþróttaskólarnir eru reknir af íþróttafélögum hverfanna í samstarfi við íþróttabandalag Reykjavíkur. Þeir eru ætlaðir 6 ára börnum og verða starfræktir þar sem því verður við komið (ef aðstæður leyfa).
Hafa foreldrarnir eitthvað að segja um innra starf heimilanna?
Frístundaheimilin leggja áherslu á foreldrasamstarf. Umsjónarmenn hafa auglýsta vikulega viðtalstíma sem þeir kynna foreldrum og jafnframt eru reglulega send út fréttabréf og dagskrár (þar sem það á við). Gott upplýsingaflæði milli foreldra og starfsmanna er góð leið til að stuðla að vellíðan barnsins á frístundaheimilinu.