Heill dagur 21.maí
Þann 21.maí næstkomandi verður síðasti heili dagur skólaársins í Neðstalandi. Hafin er skráning fyrir heila daginn og sendum við út skráningarblöð í gær. Einnig er hægt að nálgast skráningarblaðið hér fyrir neðan á heimasíðunni.
Minnum sérstaklega á að ekki er tekið við skráningu eftir auglýstan síðasta skiladag sem er að þessu sinni 17.maí nk.
Einnig þurfa börnin að koma með tvö nesti en við bjóðum uppá heitan mat í hádeginu.
Ekki er hægt að koma með dagskrá fyrr en skráningin er komin í ljós en hugmyndin er að reyna að nýta góða veðrið!!!