...
Sumarfrístund í Neðstalandi
Í dag mánudaginn 12. apríl verður opnað fyrir skráningu í sumarfrístund Neðstalands á Rafrænni Reykjavík. Sumarfrístundin hefst 14. júní og stendur til 20. ágúst að undanskildum 2 vikum (19.30. júlí), en þá verður lokað. Einnig munum við í Neðstalandi vera með lokað frá 12.-16.júlí og 3.-6.ágúst en þá verður sameiginleg opnun í Sólbúum og hægt er að skrá börnin þar. Starfsmenn Neðstlands verða að vinna í Sólbúum þessar vikur.
Eins og undanfarin ár þá mun hver vika hafa þema sem dagskrá vikunnar er sniðið að.
Þemavikurnar verða eftirfarandi:
14.-18. júní: Leikjavika
21.-25. júní: Litavika
28.júní-2. júlí: Vatnsvika
5.-9 júlí: Óvissuvika
12.-16. júlí: Náttúruvika ( Sameiginleg opnun í Sólbúum)
19.-23. júlí: Lokað
26.-30. júlí: Lokað
3.-6. ágúst: Vinavika ( Sameiginleg opnun í Sólbúum)
9.-13. ágúst: Útivistarvika
16.-20. ágúst: Menningarvika
Undanfarin sumur hefur dagskráin verið vinsæl og börnin ánægt þannig að við hvetjum alla til að drífa sig að skrá því að það er takmarkað pláss.