Laugarsel í sumarskapi
Já, þá er sumarið að ganga í garð með hækkandi sól og góðu veðri. Börnin í Laugarseli eru mikið úti þessa dagana sem er frábært og eru mörg hver með hjól, hjólbretti og hlaupahjól meðferðis í skólann. Við í Laugarseli viljum minna foreldra á hjálmana og leggjum mikla áherslu á að börnin séu með hjálma, hvort sem þau eru á hlaupahjóli eða hjólabretti. Hjólin eru hins vegar bönnuð á skólalóðinni bæði á skólatíma og á tíma Laugarsels.
Nýlega tókum við upp nýtt klúbbafyrirkomulag, en í staðinn fyrir miðvikudagsklúbbana eru klúbbar nú í boði á hverjum degi og ráða börnin því alfarið sjálf hvort þau fari í klúbb eða ekki. Val er því ávallt í boði samhliða klúbbastarfinu.
Þeir klúbbar sem eru í gangi þessa dagana eru stelpuklúbbur, strákaklúbbur, myndlistaklúbbur, búða- og heimilisklúbbur, íþróttaklúbbur, kirkjuprakkarar, spurningaklúbbur, föndurklúbbur, ferðaklúbbur og bókasafnsklúbbur.
Með kveðju, Sædís og Kristín