Íþróttavika
Nú er íþróttavika framundan hjá okkur í Buskanum. Dagana 26.-30. apríl verður íþróttavika Kringlumýrar haldin. Fimm félagsmiðstöðvar munu etja kappi í hinum ýmsum greinum á mánudegi, miðvikudegi og föstudegi.. Mun Buskinn, Laugó, Þróttheimar, Tónabær eða Bústaðir bera sigur úr býtum? Keppnin hefst núna og á mánudaginn og mun svo ljúka föstudaginn á eftir með heljarinnar sundlaugarpartý í Laugardalslauginni.
Fulltrúar úr Nemendaráði Vogaskóla eru þessa stundina að fara í bekki og ganga frá skráningu. Fylgstu með á vegg Buskans á föstudaginn þegar nöfn keppenda verða hengd upp.
Veitt verða sérstök stig fyrir besta og öflugasta stuðningsliðið á hverjum keppnisdegi.
Ekki missa af íþróttavikunni í ár!